Meðferð persónuupplýsinga hjá Alskil og Kollekta
Alskil og Kollekta eru ábyrgðaraðilar vegna vinnslu persónuupplýsinga sem afhentar eru af viðskiptavinum okkar.
Vinnsla á persónuupplýsingum kemur til vegna okkar starfa sem greiðslu- og innheimtufyrirtæki.
Alskil og Kollekta leggja ríka áherslu á að við meðferð persónuupplýsinga sé ávallt horft ákveðið til laga og reglna um persónuvernd,
með það í forgrunni að tryggja og virða réttindi einstaklinga í hvívetna.
Alskil og Kollekta vinna mestmegnis með fjármálaupplýsingar og þá sér í lagi með upplýsingar um þær kröfur sem innheimtumál í vinnslu byggjast á og
viðskipti tengd þeim sem og samskiptaupplýsingar og almennar lýðfræðilegar upplýsingar.
Upplýsingarnar eru að uppruna ýmist frá einstaklingunum sjálfum, kröfuhöfum sem hafa fengið félögunum kröfur til innheimtu eða úr opinberum skrám,
svo sem þjóðskrá og Lögbirtingablaði. Þær persónuupplýsingar sem unnið er með teljast oftast „almennar“ í skilningi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Í undantekningartilvikum er þó nauðsynlegt að vinna með viðkvæmari persónuupplýsingar og er þá ætíð gætt að því að skilyrði laga fyrir vinnslunni séu uppfyllt,
svo sem samþykki eða lagaheimild. Félögin vinna með persónuupplýsingar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili.
Alskil og Kollekta vinna persónuupplýsingar í þeim tilvikum sem þörf krefur til framkvæmdar samnings, ef mælt er fyrir um vinnsluna í lögum eða þegar það er
nauðsynlegt til að félögin eða einhver annar geti gætt lögmætra hagsmuna sinna. Lagt er kapp á að vinna persónuupplýsingar einungis upp að því marki sem nauðsyn
krefur miðað við tilgang vinnslunnar.
Persónuupplýsingar eru einvörðungu varðveittar meðan þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar í hverju tilviki.
Leitast er við að upplýsingar séu einungis varðveittar á persónugreinanlegu formi eins lengi og nauðsyn er til. Ákvæði laga, t.d. um bókhald nr. 145/1994,
kveða í mörgum tilvikum á um varðveislu gagna. Að sama skapi kann varðveisla ákveðinna gagna að byggja á lögmætum hagsmunum, svo sem að afmarka,
skilgreina, setja fram og verja lögmætar kröfur viðkomandi fyrirtækis.
Alskil og Kollekta afhenda ekki persónuupplýsingar til þriðja aðila nema það sé skylt eða heimilt á grundvelli laga.
Í einhverjum tilvikum geta upplýsingar verið sendar til vinnsluaðila sem vinna þá persónuupplýsingar á vegum félaganna.
Þeir sem þannig móttaka persónugreinanlegar upplýsingar skulu uppfylla ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og eru bundnir sama trúnaði og
starfsmenn félaganna.
Alskil og Kollekta leggja allt kapp á að tryggja öryggi gagna í sinni vörslu og uppfylla kröfur persónuverndarlaga.
Samkvæmt ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eiga einstaklingar rétt á að fá aðgang að persónuupplýsingum sínum.
Að uppfylltum tilgreindum skilyrðum er þeim einnig heimilt að láta leiðrétta þær, eyða þeim, mótmæla og/eða takmarka vinnslu þeirra.
Almennt eru beiðnir af þessu tagi einstaklingi að kostnaðarlausu, en óski hann eftir fleiri en einu afriti af gögnum eða beiðnirnar eru augljóslega án tilefnis
eða óhóflegar áskilja félögin sér rétt til gjaldtöku samkvæmt gjaldskrá. Einstaklingar geta sett fram beiðnir um að neyta þessa réttar á skrifstofu og þarf þá að
framvísa gildum persónuskilríkjum.
Hægt er að hafa samband Alskil og Kollekta með því að senda tölvupóst á alskil@alskil.is eða kollekta@kollekta.is og í síma 515-7900.
Einstaklingum er ávallt heimilt að beina erindi eða kvörtunum til Persónuverndar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Á heimasíðu Persónuverndar www.persónuvernd.is , er að finna frekari upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi og skyldur skráðra aðila.